Rúmgóður bakpoki fyrir fartölvu úr níðsterku næloni frá Case Logic. Pokinn er með fjölmörgum renndum hólfum að framan og að innan. Taskan er með innstungu fyrir heyrnartól á framhliðinni sem tengist í fartölvu eða mp3 spilara inní töskunni. Stærð 46 x 36 x 17 cm. Rúmar 15" fartölvur.
Fartölvuhulstur úr þykku neoprene efni. Hulstrið ver tölvuna fyrir hnjaski og óhreinindum með þéttum rennilás. Stærð 36 x 29 x 6 cm. Rúmar 15" fartölvur.
Sígild fartölvutaska úr níðsterku svörtu næloni frá Case Logic. Taskan er með einu innra hólfi, vasa að framan og aftan ásamt fjölmörgum hólfum. Stærð 43 x 33 x 7 cm. Rúmar 15" fartölvur. Axlaról fylgir töskunni.