Skilmálar og reglur 

Á heimasíðu okkar er mjög auðvelt að versla. Þar hefur þú aðgang að heildarvörulista okkar og getur líka búið til þinn eigin lista. Mínar síður er sniðug lausn þar sem þú og/eða sölumaður setur saman vörulista sniðinn að þínum óskum og þörfum. Nánari upplýsingar gefur söludeild.

Örugg vefverslun
VeriSign® er í dag leiðandi aðili í öryggislausnum fyrir Internetið, lausnum sem tryggja að hægt er að eiga örugg samskipti yfir Internetið. Ein helsta hindrun viðskipta á vef er traust, það er að viðskiptavinurinn er ekki sannfærður um að þær upplýsingar sem hann sendir séu að ekki hleraðar eða komist í rangar hendur.

VeriSign vottun á vefsvæði miðar að því að eyða þessari hindrun og skapa gagnkvæmt traust. Vottun vefsvæða er útbreiddasta lausn VeriSign og er notuð af öllum helstu fyrirtækjum sem bjóða þjónustu á vefnum bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna alla íslensku bankana, helstu vefverslanir og opinber fyrirtæki.

Afgreiðslutími pantana
Pantanir sem berast til Office1. Fyrir kl 12:00 eru afgreiddar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Pantanir út á land sem berast fyrir kl 12:00 fara til vöruflytjanda sama dag.

Verð
Ef pantað er fyrir meira en 9.000,- kr. er heimkeyrsla innifalin. Ef pantað er fyrir minna bætist við 800 kr. akstursgjald. Gildir innan höfuðborgarsvæðis eða til næsta flutningsaðila.

Vöruskil
Ef varan sem þú pantar er gölluð eða ekki rétt afgreidd er einfalt að skila henni. Vöruskil verða að eiga sér stað viku frá dagsetningu reiknings einnig verður varan að vera í upprunalegum umbúðum og afrit af reikningi að fylgja. Hafðu endilega samband ef um gallaða vöru eru að ræða.

Skeifan 550-4110 , Smáralind 550-4140, Korputorg 825-4107 Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Egillsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150